FLaytout Menu
Expert. For Bio and title go to: https://www.herbalife.com/en-us/about-herbalife/our-experts

Gary Small

M.D. – Stjórnarmaður í næringarráðgjafarnefnd Herbalife

Æviágrip

Dr. Gary Small er meðlimur í næringarráðgjafarnefnd Herbalife. Hann starfar einnig sem formaður geð- og atferlislækningadeildar við Hackensack University Medical Center og sem yfirlæknir atferlisheilbrigðisþjónustu hjá Hackensack Meridian Health, stærsta og umfangsmesta heilbrigðiskerfis New Jersey.

Áður var Dr. Small prófessor í geðlækningum og öldrun við David Geffen School of Medicine við UCLA.* Hann var einnig forstöðumaður öldrunargeðsviðs á Semel Institute og UCLA* langlífismiðstöðvar.

Hann var nefndur einn af 50 bestu frumkvöðlum heims í vísindum og tækni af Scientific American og hefur hann verið í fararbroddi í rannsóknum á aldurstengdri vitsmunalegri hnignun og geðsjúkdómum. Dr. Small hefur skrifað yfir 500 vísindarit og birst oft hjá „Today“, „Good Morning America“, PBS og CNN. Hann er meðhöfundur 12 vinsælla bóka ásamt eiginkonu sinni Gigi Vorgan, þar á meðal er metsölubók New York Times „The Memory Bible“.

Dr. Small er meðlimur Phi Beta Kappa félagsins, útskrifaðist með láði frá UCLA* og útskrifaður Alpha Omega Alpha frá Keck School of Medicine í USC. Eftir læknaskóla lauk hann starfsnámi í lyflækningum hjá Children’s Hospital and Adult Medical Center í San Francisco, gegndi stöðu aðstoðarlæknis á almennri geðdeild á Massachusetts General Hospital í Boston og hafði rannsóknarstöðu í öldrunarsálfræði hjá UCLA.* Hann nýtur þess að æfa og nota Herbalife SKIN® Protective Moisturiser Broad Spectrum SPF 30 sólarvörn og Herbalife24® Liftoff®. 

*University of California styður ekki tilteknar vörur eða þjónustu samkvæmt stefnu.