FLaytout Menu
Recept för nyttig dessert med mint och chokladtryffel

Þyngdarstjórnun

​​Próteinkúlur með mintu- og súkkulaðibragði

16 fyrir

10 mínútur

10 mínútur

Heilnæmara góðgæti sem er þess virði að deila á páskunum.

Finnst þér erfitt að standast þá freistingu á fá þér súkkulaðiegg á páskunum? Væri þá ekki tilvalið að prófa eitthvað sem er svolítið öðruvísi?

Próteinkúlurnar með mintu- og súkkulaðibragði frá Herbalife eru alveg jafnljúffengar og hefðbundið páskanammi. Þar að auki eru þær lausar við mjólk og alveg frábær og heilnæmur valkostur í staðinn fyrir óhollara góðgæti.

Beint úr kæliskápnum getur þú gætt þér á þessum girnilegu kúlum eftir kvöldmatinn, án alls samviskubits. Einnig gætir þú tekið nokkrar með þér í vinnuna til þess að dekra við þig með svolitlu súkkulaðinasli um miðjan morguninn.

Best er svo að úr þessari auðveldu uppskrift fást 16 ómótstæðilegar kúlur. Meira en nóg til að deila með öðrum.

Við þorum þó að veðja að þú munt ekki gera það!

Næringarupplýsingar

Næringarefni í skammti:
 

  • Orka (kcal): 56,3
  • Prótein (g): 1,5
  • Kolvetni (g): 4,7
  • Fita (g): 3,7
  • Trefjar (g): 1,4

 

Innihaldsefni

  • 2 mæliskeiðar Herbalife Formula 1 Vel samsettur næringardrykkur Myntu- og súkkulaðibragð
  • 50 g haframjöl
  • 70 g kókósmjöl (plús 2 msk. til viðbótar til að hjúpa kúlurnar)
  • 1 msk. agavesíróp
  • 70 ml jurtamjólk

 

Leiðbeiningar

  • Hrærið saman Herbalife Formula 1 Vel samsettur næringardrykkur Myntu- og súkkulaðibragð, haframjöli og 70 g af kókósmjöli.
  • Bætið agavesírópinu og jurtamjólkinni þar saman við.
  • Hrærið þar til þétt deig hefur myndast.
  • Fóðrið bakka með bökunarpappír og rúllið deiginu í 16 kúlur.
  • Hjúpið hverja kúlu með því að velta henni í matskeiðunum tveimur af kókósmjöli.
  • Færið kúlurnar yfir á bökunarpappírinn og kælið þær í 30 mínútur áður en þær eru borðaðar.

*Aðeins þegar varan er framreidd samkvæmt þeim fyrirmælum sem er að finna í áletrunum gefur hún allan þann næringarávinning sem þar er tilgreindur. Vinsamlegast munið að mæligildin fyrir sum vítamín geta verið lægri í tilbúnum rétti en tilgreint er í áletrunum ef vara frá Herbalife er notuð í uppskrift sem er hituð.