FLaytout Menu

Algengar spurningar

Ertu með spurningar? Við höfum svörin. Hér eru allar algengar spurningar um Herbalife á einum stað.

Our Company
Our Company

Virkar Herbalife?

Já, vörur frá Herbalife virka. Rannsóknir, þróun og dreifing á sérhverri vöru frá fyrirtækinu hafa farið fram með sama markmið í huga – að bæta næringarvenjur í heiminum með ljúffengum næringarvörum sem grundavallast á vísindum. Árangur af þeim byggist enn fremur á stuðningi, hvatningu og samfélagi sem sjálfstæðir dreifingaraðilar fyrirtækisins miðla til sérhvers af viðskiptavinum sínum. Vörur Herbalife verka best þegar þær eru notaðar sem hluti af vel samsettu mataræði og heilnæmum og virkum lífsstíl. Þess vegna styðja sjálfstæðir dreifingaraðilar um allan heim viðskiptavini sína með sérsniðnum matseðlum og vöruráðleggingum. 

Í einföldu máli hjálpum við einstaklingum um allan heim að tryggja sér rétta samsetningu af heilnæmri næringu.  

Árið 2020 var 1,9 milljarður skammta af próteindrykkjum Herbalife seldur á heimsvísu. Traust er alger þungamiðja hjá okkur og á grundvelli þess höfum við skapað okkur langvarandi tengsl. Við kappkostum að varðveita þetta traust með því að fjárfesta í gæðum varanna fyrir milljónir af neytendum um allan heim.  

Virka Formula 1 máltíðardrykkir?

Já, Formula 1 máltíðardrykkir virka. Þegar ljúffengir máltíðardrykkir frá okkur eru notaðir samhliða heilnæmum og virkum lífsstíl hjálpa þeir neytendum að halda sig við næringarmarkmiðin. Allar Formula 1 máltíðarvörur frá Herbalife innihalda efnablöndur sem samræmast alþjóðlegum og landsbundnum lögum og reglum. Í Evrópu eru vörur fyrirtækisins framleiddar í samræmi við reglugerð framkvæmdastjórnar ESB nr. 2016/1413, þar sem ítarlega er kveðið á um kröfur um samsetningu sem vara þarf að uppfylla til að mega kallast máltíðarvara til þyngdarstjórnunar. 

Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) hefur framkvæmt sjálfstætt mat á máltíðarvörum sem samræmast tilskipun ESB nr. 98/8/EB um orkuskerta fæðu og gefið út jákvætt álit  (https://www.efsa.europa.eu/it/efsajournal/pub/1466).

Í framhaldinu hefur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins heimilað tvær heilsufullyrðingar sem varða máltíðarvörur til þyngdarvarðveislu og þyngdarstjórnunar.

  • „Sem hluti af hitaeiningaskertu fæði stuðlar máltíðardrykkur eða stöng í stað einnar meginmáltíðar á dag að varðveislu sömu þyngdar eftir þyngdartap.“
  • „Sem hluti af hitaeiningaskertu fæði stuðla máltíðardrykkir eða stangir í stað tveggja meginmáltíða á dag að þyngdartapi.“

Hvers vegna virkar Herbalife?

Herbalife hefur sýnt fram á virkni sína með því að hjálpa milljónum manna um allan heim að ná heilsu- og næringarmarkmiðum sínum. Einu gildir hvort þig langar að vera öðrum fyrirmynd eða hvort þú ert í þörf fyrir hjálparhönd. Herbalife veitir þér tækifæri til að verða hluti af valdeflandi samfélagi og uppskera ávinning af klínískt prófuðum næringarvörum.