FLaytout Menu

Algengar spurningar

Ertu með spurningar? Við höfum svörin. Hér eru allar algengar spurningar um Herbalife á einum stað.

Our Company
Leaf background

Er Herbalife svindl?

Nei, Herbalife er ekki svindl. Herbalife er alþjóðlegt fyrirtæki sem þróar og selur næringarvörur og fæðubótarefni og markaðssetur framleiðslu sína með beinni dreifingu.

Herbalife var stofnað árið 1983. Vöxtur fyrirtækisins hefur nú skipað því í fyrsta sæti í heiminum í flokki fyrirtækja á sviði þyngdarstjórnunar og heilnæms lífsstíls. Það er nú eitt af stærstu næringarfyrirtækjum heims. Við útvegum neytendum um allan heim hágæða næringu með hjálp tengslanets sjálfstæðra dreifingaraðila.

Viðskiptatækifæri Herbalife grundvallast á ríkri áherslu fyrirtækisins á kröfuharða staðla og gagnsæi. Með lágum stofnkostnaði og 90 daga endurgreiðslurétti skapar Herbalife traust hjá öllum sem langar að verða sjálfstæðir dreifingaraðilar.

Viðskiptatækifæri Herbalife krefst þess að fólk leggi hart að sér. Ómögulegt er að stytta sér leið til auðæva og engin trygging er fyrir velgengni.

Herbalife styður sjálfstæða dreifingaraðila með hjálpargögnum sem aðstoða þá við markaðsetningu og notkun samfélagsmiðla. Þar á meðal bjóðum við upp á kennslugögn um árangursríka sölutækni. Fyrirtækið hefur yfir 40 ára reynslu í næringariðnaðinum og heldur áfram að skipa sér í fyrsta sæti á sviði þyngdarstjórnunar og heilnæms lífsstíls.

Hvers vegna er Herbalife ekki svindl?

Herbalife starfar í yfir 90 löndum í öllum heimshornum og gætir þess að fylgja til hins ýtrasta öllum lands-, svæðis- og alheimslögum og reglugerðum. Gullstaðalábyrgð Herbalife grundvallast á stefnu sem innleidd hefur verið til að vernda alla sjálfstæða dreifingaraðila og viðskiptavini.

Skoðaðu gullstaðalábyrgðina hér fyrir neðan:

  • Lítill stofnkostnaður: Gjald fyrir að skrá sig til þátttöku sem sjálfstæður dreifingaraðili er lágt og ekki er krafist neinna lágmarksinnkaupa. Þar að auki brýnum við fyrir nýjum sjálfstæðum dreifingaraðilum að gæta þess vandlega að kaupa ekki mikið birgðamagn.
  • Enginn viðbótarkostnaður: Ekki er krafist neinna innkaupa á aukalegum sölu- eða viðskiptagögnum til að hefja aðild að Herbalife eða ná árangri af henni.
  • Ábyrgð á 90 daga endurgreiðslurétti: Allir sjálfstæðir dreifingaraðilar eiga rétt á að fá fulla endurgreiðslu á kostnaði af upphafspakka Herbalife innan 90 daga ef aðild er sagt upp af einhverjum ástæðum. Við endurgreiðum meira að segja sendingarkostnað.
  • 12 mánaða skilaréttur gegn endurgreiðslu: Við ábyrgjumst að skila megi öllum ónotuðum vörum gegn 100% endurgreiðslu. Þetta þýðir að sjálfstæðir dreifingaraðilar hafa heilt ár til að skila hvers kyns óseldum eða ónotuðum vörum sem keyptar hafa verið á undangengnum 12 mánuðum.
  • Fræðsla og þjálfun: Við skilgreinum nákvæmlega ávinninginn af sérhverri vöru og réttar aðferðir til að nota hana í áletrunum á vörunni sjálfri – við viljum gæta þess til hins ýtrasta að rétt vara sé notuð á réttan hátt til að ná raunhæfum árangri.
  • Gagnsæi og heiðarleiki: Við gefum fólki raunhæfar væntingar um viðskiptatækifærið, mögulegar tekjur og þann dugnað sem þarf til að ná árangri á öllum þrepum sölu- og markaðskerfisins.
  • Gagnkvæmt samkomulag: Við krefjumst þess að allir nýir sjálfstæðir dreifingaraðilar staðfesti skriflega að þeim sé kunnugt um allar meginreglur sem eru fólgnar í gullstaðalábyrgð Herbalife áður en aðildarumsókn þeirra og samningur hljóta samþykki.